Sérhver saga er miklu betri á íslensku
29. ágúst, 2026 · Madrid, Spánn
La Morena & tobbetto
20 ár saman. Einn dagur til að fagna því.
Jæja, við skiljum þetta. Þú hefur lítinn tíma og rómantískar sögur heilla þig ekki. Þess vegna færð þú leyfi til að hoppa beint í RSVP-formið.
Svona kynntumst við
2006
01
Allt hófst með augnaráði „sannaðu að þú sért Íslendingur“, brosi og þessari dásamlega óskynsömu tilfinningu að hér væri að fæðast stór saga.
Eftirminnilegar setningar:
„Ég vil ekki flækjur“
„Það er eitthvað rangt við augun í þér“
Eins og sjá má höfðu örlögin sinn eigin húmor.
Árin í sundur (fyrri hluti)
2007–2008
02
Við skildum aðeins nokkrum dögum eftir að hafa kynnst, og lærðum það á erfiða mátann: að ganga hvort sína leið á meðan hjörtun, þrjósk og staðföst, vildu leiða okkur saman.
Eftirminnilegar setningar:
„Farðu á Messenger!“
„Ef þú leikur þér að eldi, þá brennurðu.“
Madrid (fyrri hluti)
2009–2013
03
Madrid varð bandamaður örlaganna og leiddi okkur aftur saman. Milli Toledo og Pontones gatna, í öllum þessum plönum og lönguninni til að sjá hvort annað aftur, áttum við okkur á því að þetta var engin tilviljun.
Eftirminnilegar setningar:
„Komdu Tobbi, komd’að dansa. Þú gerir það frábærlega! Þú hreyfir þig eins og pálmatré í vindi, mjúkur, mjúkur, mjú-mjú-mjúkur“
„Já, ég veit. Ég er með ofnæmi.“
„Börn já, brúðkaup nei.“
Árin í sundur (seinni hluti)
2014–2015
04
Fjarlægðin kom aftur, með þeirri þyngd sem hún alltaf ber, en þá vissum við nú þegar að það sem við áttum færi ekki svo auðveldlega úr skorðum… og að Swiss Air átti alltaf frítt súkkulaði sem beið okkar.
Eftirminnilegar setningar:
„Hvað með við eyðum deginum á hjóli?“
„Farðu á Skype!“
Sviss
2015–2018
05
Sviss setti sviðið, en sagan var önnur: heimilið okkar var aldrei staður, heldur við tvö.
Eftirminnilegar setningar:
„A priori“
„Stúlka! Viltu sjá château?“
Katla
2016
06
Og þá kom Katla – augnablikið sem öllu breytti. Stúlka of góð til að vera sönn, með eldfjallahjarta og gul augu sem halda manni föngnum. Með henni lærðum við að hægt er að lifa með minni svefni, meiri ringulreið… og að besta útgáfan af okkur var rétt að byrja.
Eftirminnilegar setningar:
„Est mejor lokað” → Það er betra lokað
„A la calle de yfir brúna” → Á götuna með brúnni
„Me he gleymado” → Ég hef gleymt
Madrid (seinni hluti)
2019–…
07
Við snerum aftur þangað sem allt byrjaði… eða næstum því. Í staðnum sem við elskum Getafe, með þá einu vissu sem skiptir máli: við, saman, hvar sem er.
Eftirminnilegar setningar:
„Viltu giftast mér?“
„Einn skammt af volandrines, takk.“
Eldey
2020
08
Og svo kom Eldey. Hún sem tekur völdin án þess að biðja um leyfi — með hlátri, með mýkt villtri gleði og beittri hugsun. Litla pönkarastelpan okkar… með næturdjúpt blik í augum, ávallt skrefi á undan.
Eftirminnilegar setningar:
„¿Por qué no pones el jefe ese?“ Kallaði GPS stjórinn okkar sem hljómar eins og GPS.
„Mi a pono las patatillas?“ -> Á ég að farast í skóna?
Og nú… giftum við okkur
2026
09
Þetta er ekki upphafið. Þetta er staðfesting á öllu sem við vorum nú þegar.
Tuttugu ár af því að hittast, kveðjast, finna hvort annað aftur, flytja á milli staða, fara um flugvelli og ótrúlega mikili ást. Satt að segja var löngu kominn tími til að fagna þessu—saman.
Eftirminnilegar setningar:
„Skálað í næstsíðasta sinn“
„Dansa í næstsíðasta sinn“
„Djammað í næstsíðasta sinn“






































































